Þessi síða er nú aldeilis að deyja út, ég ætla því að bregða smá
gleði myndum af okkur strákunum í dagelgu lífi..........
Ögmundur fór í leikbæ um
daginn þar sem útsala var á ofuhetjubúningum en hann er eins
og allir vita að verða faðir og ekki verra að gerast fyrirmynd
barnsins og í ofurhetjubúning. Ögmundur fattaði hins vegar
ekki að búningarnir komu frá Austur Evrópu og þar eru til
ofurhetjur sem við könnumst ekki við. Ögmundur mætti hins
hress í kaffi til ömmu sinnar og sýndi nýja búninginn.
Atli Sveinn var heldur
betur hress í göngutúr með konunni sinni í Elliðaárdalnum um
daginn. Atli fór með því hugarfari að safna spreki og drasli í
arineldinn fyrir komandi vetur. Eins og allir vita var talið
að Atli hafi meiðst í baki í síðasta leik en svo var
ekki en Alit vildi fara öllu með gát og lét konuna
bera sprekið. Atli er ekki að reykja á myndinni heldur að
senda ljósmyndaranum fingurkoss!!
Óli var gjörsamlega
búinn á því eftir erfitt útihlaup um daginn. Hann var svo
þreyttur og búinn að missa svo mikið vatnsmagn að hann
byrjaði allur skreppa saman blessaður. Eins og sjést á
myndinni hefur Óli rakað af sér hárið og litið það litla sem
er efit svart. Útihlaupin og ber af ofan í sumar hefur gefið
honum Óla góða brúnku eins og sjést á myndinni.
Mikael lenti frekar illa
í því um daginn þegar boðið var skiptinemum að taka þátt í
nautaati í Madrid. Mikael var gríðarlega spenntur og fór
keypti sér búning enda þjóðareinkennum spánverja. Ekki fór
eins vel og Mikael hafði vonað og liggur hann nú á maganum á
sjúkrahúsi í borginni og verður að vera þannig næstu 5-6
vikurnar.
Bjarni var afar svekktur
þegar hann kom heim af æfingu í fyrradag eftir að liðsfélagar
hans höfðu rakað bút af hárið hans. Bjarni var búinn að gefa
það út að hann ætlaði að safna hári í 2 ár. Fréttir hafa
borist um að hann sé búinn að raka allt hárið af sér og lokað
sig inni í herbergi og ætli að vera þar í 2 ár. Kærasta Bjarna
vildi ekki koma í viðtal en sagði hann mjög viðkvæman.
Það hafi örugglega allir
tekið eftir honum Snæ og nýju klippingunni hans. Snær gerði
sér lítið fyrir og fékk sér permanett. Hann hefur vakið mikla
athygli hjá borgarbúum og hefu rverið valinn Reyðfirðingur
ársins. Snær ku vera mjög hamingjusamur með klippinguna og
hvetur alla að fá sér svona greiðslu. Síðasta þegar heyrðirst
í Snæ ætla hann að fá sér grænar strípur í permanettið, við
bíðum auðvita spennt eftir að sjá það.
Egill var vígarlegur við
setningu skólans nú í mánaðarbyrjun. Hann mætti í jólafötunum
sínum en hatturinn er sagður vera í eigu Jón Bladvins
Hannibalssonar en þó er ekkert staðfest í þeim efnum. Egill
bar á brjósti flestar þær medalíur sem hefur eignast fyrir
knattspyrnu í gegnum tíðina og hélt á hinum frægu
"Seyðisfjarðarspýtunni" sem ku vera fyrsta spýta sem rak í
fjörðinn. Skikkjuna sem Egill var í er gamal sængurver frá
móður sinni.
Þá hafið þið það, takk fyrir túkall og skál!!!!!